Við notum vekökur.
Cookies, die für die Grundfunktionen unseres Shops notwendig sind (z.B. Navigation, Warenkorb, Kundenkonto).
Cookies, über die wir Informationen zur Art und Weise der Nutzung unseres Shops sammeln. Mit deren Hilfe können wir den Einkauf für Sie weiter optimieren. Beispiel-Anwendung: Google-Analytics.
Über Marketing-Cookies wird es uns ermöglicht, den Inhalt auf unserer Website aber auch die Werbung auf Drittseiten möglichst relevant für Sie zu gestalten. Bitte beachten Sie, dass Daten hierfür teilweise an Dritte übertragen werden. Beispiel-Anwendungen: Criteo oder Facebook.


Sýna síur

Persónuverndarskilmálar

Bergson getur safnað, notað, geymt eða flutt mismunandi flokka persónuupplýsinga um viðskiptavini sem skipta má í eftirfarandi flokka:

Auðkennisupplýsingar: Nafn, kyn og kennitala
Samskiptaupplýsingar: Netfang og póstnúmer
Upplýsingar um kaupsögu: Yfirlit yfir þær vörur sem hafa verið keyptar í gegnum vefverslun Bergson.is

Bergson safnar ekki viðkvæmum persónuupplýsingum á borð við kynþátt, uppruna, trúarbrögð, kynhneigð, pólitískar skoðanir og svo framvegis.

Tilgangur öflunar

Bergson nýtir persónuupplýsingar til þess að greina betur þarfir viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Með þeim hætti getur Bergson ákveðið hvaða vörur eiga að vera í birtingu á vefverslun og hvaða efni á að miðla áfram til viðskiptavina í markaðslegum tilgangi.

Áskrifendur á póstlista geta hvenær sem er óskað eftir því að fá ekki sent markaðsefni til sín með því að afskrá sig af póstlista. Það er hægt að gera með því að smella á tengil sem er neðst í öllum tölvupóstum frá Bergson.

Taka skal fram að ef/þegar áskrifandi á póstlista skráir sig af póstlista mun sá aðili ekki lengur fá markaðsefni sent frá Bergson. Þrátt fyrir það er Bergson áfram heimilt að vinna með þær persónuupplýsingar sem tengjast kaupum á vörum og viðskiptasögu.

Miðlun persónuupplýsinga

Bergson miðlar engum persónuupplýsingum til þriðja aðila. Persónuupplýsingar sem gefnar eru upp á vefsvæði Bergson eru því ekki aðgengileg fyrir neinn annan.

Réttindi notenda vefsvæðis og áskrifenda á póstlista

Í vissum tilvikum hafa þeir aðilar sem verslað hafa vörur í gegnum vefverslun Bergson, eða eru á póstlista ákveðin rétt á að láta eyða persónuupplýsingunum sínum eða fá þær afhentar.

Upplýsingar um persónuvernd má finna á www.personuvernd.is

Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar eða athugasemdir bendum við þér á að hafa samband við okkur í netfangið service@bergson.is

Hvað eru vafrakökur?

Vafrakaka er lítil skrá, sem hleðst inn í vafra þegar notendur fara inn á ákveðin vefsvæði t.d vefsíðu Bergson. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að greina á milli notenda og hvernig þeir vilja nota vefsvæðin. Nánari upplýsingar um vafrakökur má t.d. finna á www.allaboutcookies.org.

Hverjar eru mismunandi gerðir vafrakaka?

Vafrakökur eru notaðar í mismunandi tilgangi. Í grófum dráttum má skilgreina fjóra flokka:

Nauðsynlegar kökur – þessar kökur tryggja eðlilega virkni og öryggi tenginga.
Valkvæðar kökur – þessar kökur gera vefsvæðinu kleift að muna útlit, hegðun og/eða aðrar breytingar eða val sem notandi kýs að framkvæma á vefsvæðinu.
Tölfræði kökur – þessar kökur aðstoða aðstandendur vefsvæðisins að skilja hvernig notendur upp til hópa haga sér á vefsvæðinu.
Markaðskökur – eru notaðar til að fylgja notendum á milli vefsvæða. Markmið þeirra er fyrst og fremst að sýna notendum auglýsingaefni sem vonandi hefur vægi fyrir notendann.

Hvernig get ég losað mig við vafrakökur?

Þeir sem vilja aftengja eða losa sig við vafrakökur geta gert það í stillingum á þeim vafra sem notast er við. Taka skal fram að slík aftenging eða eyðing á vafrakökum getur haft afgerandi áhrif á notendaupplifun og stillingar á vefsíðu Bergson.

Hafðu samband

Ef þú hefur frekari spurningar eða athugasemdir sem tengjast vafrakökum á vefsvæði Bergson getur þú haft samband við okkur á service@bergson.is.