Sýna síur

Skilmálar

Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 2-5 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist. Varan er send með flugpósti frá lagernum okkar í Þýskalandi og ætti að skila sér innan 2-5 virkra daga á áfangastað.

Pantanir

Tekið er á móti pöntunum í gegnum vef eða í síma +354 8610921. Pantanir eru afgreiddar um leið og greiðsla hefur borist. Þá er kaupanda einnig send staðfesting í tölvupósti.

Skilaréttur

Kaupandi hefur 100 daga til að hætta við kaupin að því tilskyldu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er keypt eða afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan hefur verið móttekin. Flutnings-og póstburðargjöld (ef einhver) eru greidd af Bergson. Vinsamlegast hafið samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna.

Verð

24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um prent/innsláttar villur og áskilur Bergson sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.

Sendingarkostnaður

Við bjóðum uppá endurgjaldslausar sendingar á öllum pöntunum.

Greiðslur

Við bjóðum upp á greiðslu með greiðslukorti og millifærslu.